Ábótinn hefur hýst lén síðan 1996 svo nokkur reynsla hefur safnast liðin ár.

Til að nýta Internetið undir eigin lénsnafni þarf að fylla út og skila umsóknum um lén (á ensku "domain"). ISNIC.is hefur með höndum úthlutun .is léna á Íslandi. Ábótinn hýsir og þjónustar lén í nafnaþjónum sínum og aðstoðar við útfyllingu umsóknar ef þörf krefur.

Atburðarrás fyrir hýsingu á léni á vefþjónum Ábótans er þessi:

Senda þarf Ábótanum ósk um hýsingu á tilteknu léni (sé það laust) með símtali (símar 481 2258 eða 898 2935 og þar er einnig frekari upplýsingar að fá). Ábótinn vinnur síðan umsóknina og gengur frá henni. Samfara þessu þarf að greiða tilgreint stofngjald til Isnic kr. 7.918.

Gjaldskrá fyrir skráningu og hýsingu léna (.IS)

Uppsetningartími er 8-48 klukkutímar.

Ábótinn ehf áskilur sér allan rétt til að loka hýstum lénum eða loka aðgengi að efni, sem ekki samrýmist góðu og gildu kristilegu siðferði, án frekari aðvörunnar.

Hafið frekara samband séu upplýsingar hér ónógar eða lénaþörfin önnur.

 

Síðast breytt 18. janúar 2012