Ljósleiðari opnaður í Gnúpverjahreppi

 

Laugardaginn 6. apríl 2002 boðar Ábótinn ehf til ljósleiðaradags í félagsheimilinu Árnesi í Gnúpverjarhreppi.


Dagskrá hefst kl. 14 og lýkur kl. 17.


Opnað verður með formlegum hætti fyrir ljósleiðaratenginu þá er Ábótinn ehf er búinn að koma á, í samstarfi við Fjarska og Línu.net.


Þér og þínum er hér með boðið til að koma og vera við þennan merkilega og enn sem komið er einstæðan atburð, að íbúum og fyrirtækjum til sveita- standi til boða háhraðatenging við umheiminn. Öllum sem koma er boðið að taka þátt í happdrætti. Vinningur er tölva af gerðinni iMac eða HP Vectra.


Dagskráin verður með þessum hætti.

  • Opnun fyrir ljósleiðarann.
  • Ábótinn-Fjarski, bændur og bandvídd með væntanlegu loftnetssambandi.
  • Bjarni Einarsson oddviti- Gnúpverjarhrepps.
  • Rut Guðmundsdóttir, skólastjóri Brautarholtsskóla og Gnúpverjaskóla.
  • Fjarfundarávarp samgönguráðherra, Sturlu Böðvarssonar. kl. 14:30 sunnan úr Reykjavík.
  • Opnun heimasíðu Hestakráarinnar á Skeiðum www.hestakrain.is.
  • Bændur og bandvídd. Guðmundur Jóhannesson, Búnaðarsambandi Suðurlands.
  • Atvinnutækifæri -peningarnir í pípunni.


12 tölvur standa gestum til afnota og könnunnar á sambandinu við umheiminn.


Einnig verður IP – sími Línu.nets á borði þar sem gestir geta hringt hvert sem er í heiminum.

Ljósleiðari Ábótans


12. júní 2001. skrifuðu Ábótinn ehf. í Tröð og Lína.Net ehf. undir samning um ljósleiðaratengingu í gegnum Landsnet Línu.Nets. Samningurinn kveður á um 10/100 Mb/s ljósleiðaratengingu inn í Gnúpverjaskóla en þaðan verður ljósleiðaranum dreift um nágrennið.


Landsnet Línu.Nets er framlenging á svokölluðu IP-Borgarnetinu til landsbyggðarinnar, en öll sú þjónusta sem í boði verður á IP-Borgarnetinu stendur einnig þeim til boða sem munu tengjast Landsnetinu. Má þar nefna 50 rása sjónvarp, fjarfunda og fjarkennslu og IP-símaþjónustu. Þetta er fyrsti áfanginn í landsbyggðarsókn Línu.Nets í samstarfi við Fjarska, dótturfyrirtæki Landsvirkjunnar og ljósleiðari í Búrfellslínu 3 er nýttur.


Ábótinn hefur sem sagt ráðist í það verk í samstarfi við Línu.Net að koma á ljósleiðaratengingu við Gnúpverjahrepp til að stuðla að tækifærum fyrir einstaklinga og fyrirtæki til að nýta sér stafræna tækni við að skapa sér verðmæta atvinnu. Ljósleiðaratengingin þúsundfaldar internetsambandið sem sveitin hefur getað notað (21.000-128.000 bita samband hefur gefist en fer upp í 100.000.000 bita samband) og býður því upp á mikla möguleika á stafrænni tækni.


Með ljósleiðaratengingunni opnast nýir möguleikar fyrir okkur íbúa og nemendur í Gnúpverjahreppi þar sem þeim gefst nú í fyrsta sinn kostur á almennri internetþjónustu með háhraðatengingu eins og best þekkist sem nýtist meðal annars vel til fjarnáms, fjarfunda, tölvukennslu.


Þessi samningur sem undirrituð markar því mikil tímamót í Gnúpverjahreppi og væntanleg víða öðrum til hvatningar.
Hann er stórt og mikilvægt skref að upplýsingavæða samfélagið í Gnúpverjahreppi og skref í netvæðingu grunnskólans, skapandi tækifæri sem menn hafa ekki getað nýtt sér áður og opnar fyrir þjónustu sem þarf mikla bandvídd, ss. fjarfundi. Ljósleiðaratengingin margfaldar möguleika barna aðgengi að námsefni og öðru góðu og uppbyggilegu efni. Biðtími við tölvur heyri sögunni til því tími barna er líka verðmætur. Því gera margt meira skapandi en að bíða!

Frá undirritun samningsins
Arnar Már Ottósson Lína.net, Árni Árnason og Axel Árnason Ábótanum ehf.

Móinn geymir ljósið! Árni, Arnar Már og Axel. Hekla í bakgrunni.