
Verð til einstaklinga og heimila:
| Verð krónur/mán (m. vsk) | Hraði til og frá allt að Mbit/s |
Notkunarstuðull |
Erlend gagnamagn innifalið | |
| 5.600 | 4 |
40GB |
1GB (1.000MB) | |
| 6.300 | 4 |
40GB |
2,5GB (2.500MB) |
|
| 2.650/4.100 sumarhús | 1/2 |
20GB |
1GB (1.000MB) |
Verð til fyrirtækja og heimila:
| Verð krónur/mán (m. vsk) | Hraði til og frá allt að Mbit/s |
Notkunarstuðull |
Erlend gagnamagn innifalið | |
| 13.700 | 4 |
120GB |
2,5GB (2.500MB) | |
Í boði eru aðar tengingar sem henta viðskiptavini betur og með öðrum hætti en hér greinir. Upplýsingar þar um hjá Ábótanum.
Erlent gagnamagn er kostnaðaraukandi, því þarf viðskiptavinur að ákveða hvað hann innifelur í mánaðaráskrift sinni.
Í boði er:
allt að 5GB pakkiá 1.450 kr.
allt að 10GB pakki á 2.100 kr.
allt að 30GB pakki á 6.300 kr.
Gagnamagn erlent utan viðbótar áskrift er gjaldfært fyrir hvert hafið GB á 500 kr. og er gert fært á þar næsta mánuð eftir notkunarmánuðinn.
Notkunnarstuðull á heildargagnaflæði um tengingu er 40GB. Sé hún meiri þá eru viðkomandi notandi að taka til sín meira en hann er að greiða fyrir og halli kemst á dæmið. Til að geta mætt yfirkeyrðri notkun þá verður meira álag á tengingar en gengið er út frá. Þá fá aðrir ekki það sem greitt er fyrir, að öðru óbreyttu. Því þarf að setja upp meiri búnað til að anna eftirspurninni. Rukkað er því fyrir heildargagnamagn deilt með nokunarstuðli og mánaðargjaldið hækkað sem því nemur af marfeldi umfram notkunarstuðul. Dæmi: 165 GB fara um tengingu heimilis: 165GB/40GB gerir upphækkað í 5. Með öðrum orðum, þessi notandi er að taka til sín sem nemur 5 notendum. Rétt þykir því að rukka viðbótargjald sem reiknast 50% verði grunntengingar margfaldað með notkkunnarstuðli mínus 1. Dæmi er um að notandi hefi flutt um tengu sína á einum mánuði 550GB. Þó innanlandsflutningur sé ekki gjaldfærður sem slíkur þá er gagnamagnið ekki ótakmarkað sem mánaðargjaldið nær yfir.
Internetsambönd eru afhent með þrennum hætti Wimax, ADSL og ódýrari þráðlaus búnaður
Wi-Max: Wi-Max samböndin byggja á tíðnisviðinu 3,5 Ghz sem er úthlutuð tíðni frá Póst og fjarskiptastofnun. Búnaðurinn er margfalt betri en Wi-Fi. Alþjóðafjarskiptasambandið ITU hefur flokkað WiMax sem hluta af s.k. þriðju kynslóð, 3G. Þó flestir líti á 3G sem nýja kynslóð farsíma er í raun margvísleg tækni flokkuð sem 3G og nú hefur WiMax, sem er langdræg háhraða nettækni, bæst í þann hóp. Wi-Max er hluti framtíðarfjarskipta. Búnaðurinn sem nýttur er frá Alvarion.com og Icecom.is og er gæða búnaður á allan máta. Búnaður er alltaf í eigu Ábótans.
Wi-Max er örbylgjukerfi sem getur boðið upp á Internet, síma og fjarvöktun. Úr turnháum möstrum er merki sent af stað er dregur 50km sjónlínu:
Afnotagjald af Wimax búnaði er 3000 kr/mán af tengingum frá 1. janúar 2011 í stað stofngjalds að tengingu.
ADSL-sambönd rennur eftir símalínum frá símstöðinni við Brautarholt á Skeiðum og frá símstöðinni við félagsheimilið Árnes, báðar í Skeiða- og Gnúpverjarheppi. Hraði allt að 8Mbit/s og drægni 5000 símalínumetrar. Afnotagjald af ADSL router 500 kr/mánuði verður lagt á eftir 1. janúar 2011.
5Ghz Mimo búnaður sem í boði er, dregur allt að 20 km og er stilltur til að skila notanda allt að 4Mbit/s frá samnýttum örbylgjusendi. Örbylgjusamböndin Mimio byggja á opinni tíðni á tíðnisviði. Þetta þýðir að örbylgjan er ekki truflunarlaus máti til samskipta. Það er margt sem getur truflað og vert er að hafa það í huga. Í flestum tilvikum hefur þetta gengið hnökralaust en þrautinni þyngra að ráða fram úr truflunum eða öðrum bilunum. Þess vegna er ekki ráðlegt að byggja öryggiskerfi ofan á þennan búnað eða fjárhagslega afkomu. Rétt er að benda á Wimax sambönd í þeim efnum. Afnotagjald af Mimobúnaði er kr. 1.000 kr/mán.
Drægni Mimo örbylgjubúnaðarins er 15-20 km sjónlína frá útsendingarstöðum en þeir eru:
3G tengingar í endursölu frá Símanum standa einnig til boða gegnum Ábótann ehf. en mælum ekkert sérstaklega með þeim sem heimilis- eða fyrirtækjatengingu.
ADSL tengingar í endursölu frá Símanum standa einnig til boða gegnum Ábótann ehf. á svæðum sem Síminn veitir ADSL tengingar.
En nokkur orð um uppsetningu:
Nokkur orð um tenginguna:
Búnaður sem stendur hjá notendanum talar við miðjubúnaðinn, þaðan við ljósleiðarkerfi Ábótans við Félagsheimilið Árnes í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Ljósleiðarakerfi Ábótans tengist síðan við ljósleiðara Fjarska til Reykjavíkur á 100 Mbit/s tengingu við Vodafone.
Með örbylgjusambandi Ábótans fylgir þrjú netföng. Hægt er að velja sér netfang@uppsveitir.is, eða netfang@love.is, @consul.is, @handverk.is, @holtin, @jarl.is, @landeyjar.is, @love.is, @pax.is og @floinn.is. Ef þarf fleiri, þá er greiddar 350 kr. á mánuði hvert netfang.
Örbylgjusambönd Ábótans fóru að streyma í mars 2003. Ljósleiðarasambönd í apríl 2002.
Mánaðargjöld eru innheimt með kreditkortum eða greiðlsuseðlum (útskriftargjald reikninga kr. 250)
Ábótinn rekur ekki 24 tíma þjónustu 7 daga vikunnar, en reynt er að mæta bilunum eftir föngum. Rukkað er fyrir þjónustu sem snýr að búnaði notanda, en ekki sjálfum búnaði Ábótans. Þetta þýðir að ef eitthvað er snúið heima fyrir og þjónustu er þörf þá er rukkað fyrir unna tíð.
Þau sem sjá sér hag í því að nýta sér örbylgjusambönd Ábótans ættu að hafa frekara samband, annað hvort í síma 481 2258 nú eða með tölvupósti abotinn (hja) abotinn.is.
NOTENDA S K I L M Á L A R ÁBÓTANS