Reglur Póst - og fjarskiptastofnunnar kveða á um að fjarskiptafyrirtæki skulu birta opinberlega um ósamfellda virkni á sjálfu kerfinu. Ekki er birt hér sem snýr að hverri tengingu.

Í 24. gr. reglna nr. 1222 Póst og fjarskiptastofnunnar er fjallað um tilkynningar um ósamfellda virkni:
„Fjarskiptafyrirtæki skulu vera með skýra og skilvirka ferla vegna tilkynninga um ósamfellda virkni, eða hættu á slíku í almennum fjarskiptanetum sínum, svo sem af völdum truflana, bilana og breytinga. Tilkynna skal viðskiptavinum um slík atvik og skulu þjónustuviðmið þar að lútandi koma fram á heimasíðu fyrirtækisins eða eftir sambærilegum leiðum, t.d. í viðskiptamannasamningum. Í tilkynningunum þarf að lágmarki að koma fram hvaða áhrif atvikið hefur eða getur haft, og þær ráðstafanir sem fjarskiptafyrirtækið muni gera, ásamt ráðleggingum til viðskiptamanna ef svo ber undir“.

Á þriðjudagsmorguninn 16. mars 2010 var farið á Skíðbakka og búnaður settur í gang en ekki tókst betur en svo að mistök voru gerð sem ollu því að Langholt lokaðist á ný kl. 10:17. Á Langholtsfjall þurfti að ganga vegna aurbleyt og um þrjú leytið var búið að greiða úr þeim vanda sem fór af stað á Skíðbakka. Enn fremur þurfti að endurræsa ruglaðan búnað í stjórnstöð Ábótans. Þetta tók sem sagt þennan tíma og beðist velvirðingar á óþægindum og ergelsi.

Mánudaginn 15. mars 2010 fór rafmagn af Langholtsfjalli. Varaafl Ábótans þar dugar í 30 mín og er fyrst og fremst hugsað til að varðveita búnaðinn frá breytingu á spennu. Þegar rafmagnið kom á aftur fór Skíðbakki og þar með Jórvík ekki í samband, þrátt fyrir aðgerðir

Föstudaginn 29. janúar 2010 Wimax sambönd frá Hurðarbaki munu detta út í klukkutíma eftir hádegi í dag, vegna fluttnings á tækjum í mastrinu.

11. október 2008 rétt um kl. 10:20 var grafinn í sundur rafmagnsstrengur í Hrunamannahreppi sem sló út rafmagnið á þeim slóðum. Þar með fór rafmagnið af Langholtsfjalli en þaðan fer internetstraumur Ábótans víða og til ykkar flestra. Ofan á þetta bættist að vararafmagn Ábótans sem á að mæta svona 5 tíma rafmagnsleysi fæddi aðeins hluta kerfsins og ekki þann mikilvægasta. Þess vegna varð þessi skurðgröftur að sambandsleysi sem annars hefði ekki þurft að vera.